#háskólaríhættu

Meðalframlag íslenska ríkisins á hvern ársnema í háskóla er tæplega 1,3 milljónir króna. Ísland er þar langt á eftir nágrannaþjóðum sínum því framlagið nemur rúmlega 2,2 milljónum króna að meðaltali annars staðar á Norðurlöndum. Í aðgerðaáætlun Vísinda- og tækniráðs er markmiðið að styrkja fjármögnun háskólakerfisins hér á landi svo hún Read more…

Nýtt skólaár hafið

Kæru samnemendur! (ENGLISH BELOW!) Nýnemar: velkomnir í HR, aðrir: velkomin aftur til starfa! Fyrir þá sem ekki vita að þá er SFHR, Stúdentafélag Háskólans í Reykjavík, hagsmunafélag nemenda í HR. Ef þið eruð ósátt við eitthvað innan skólans, svo sem kennsluna, áfangana, kennarana, aðstöðuna eða eitthvað annað, hafið þá samband Read more…

SFHR og Aðalskoðun

Frábært tilboð á bílaskoðun til nemenda – 4.000 kr. afsláttur! Nýverið skrifaði Stúdentafélagið undir samstarfssamning við Aðalskoðun og er fyrirtækið orðið einn bakhjarl félagsins. Aðalskoðun býður nemendum HR 4.000 kr. afslátt af aðalskoðun bifreiðar þeirra (um 35% afsláttur) gegn framvísun HR skólaskírteinis ef komið er 1. – 25. dag mánaðar. Tilboðið gildir fyrir Read more…

Dagatal

Dagatal haustönn 2022 Helstu viðburðir sem tengjast SFHR og samstarfsaðilum á haustönn 2022 og dagsetningar* þeirra er hægt að sjá hér: Nýnemavika SFHR Í öllum hádegishléum verður stemming og glaðningar í sólinni vikuna 15-19 ágúst! Partý píla! Fer fram á Bullseye fimmtudaginn 18. ágúst. Pláss fyrir 300 nemendur, og að Read more…

Síðdegisboð á Bessastöðum

Síðdegisboð á Bessastöðum Fullveldisdagurinn 1.desember er einnig hátíðardagur stúdenta og árlega er fulltrúum stúdenta og stjórnendum háskólanna frá háskólum hvarvetna af landinu boðið til hátíðarmóttöku á Bessastöðum. Því var mikil ánægja fyrir stjórn Stúdentafélagsins að fá boð í síðdegisboð á Bessastöðum 1.desember sl. til heiðurs háskólasamfélaginu. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson Read more…

MPM-nám við HR hlýtur vottun Breska verkefnastjórnunarfélagsins

MPM-nám við HR hlýtur vottun Breska verkefnastjórnunarfélagsins MPM-nám í verkefnastjórnun við tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík hlaut nýverið formlega vottun frá Breska verkefnastjórnunarfélaginu, APM. Í umsögn kemur fram að MPM-námið við HR sé dæmi um bestu aðferðir (e. best practice) á heimsvísu í meistaranámi í verkefnastjórnun. Vottunin er mikil Read more…

Fjölskyldudagur SFHR

Fjölskyldudagur SFHR Fjölskyldudagur SFHR var 17.október frá kl. 11-14 í Sólinni í Háskólanum í Reykjavík. Sirkus Íslands var með skemmtiatriði og pylsur voru í boði Stúdentafélagsins fyrir gesti, gangandi og skríðandi. Einnig bauð SFHR upp á kaffi fyrir fullorðna og andlitsmálningu fyrir alla sem vildu. Öll nemenda- og hagsmunafélög skólans voru Read more…

Jafn­rétt­is­fé­lag stofnað í HR

Jafn­rétt­is­fé­lag stofnað í HR Stúd­enta­fé­lag Há­skól­ans í Reykja­vík stofnaði formlega Jafn­rétt­is­fé­lag Há­skól­ans í Reykja­vík þann 5.október. Fé­lagið er stofnað í upp­hafi Jafn­rétt­is­daga sem haldn­ir eru há­skól­um lands­ins 5.-16.október. Í til­efni þeirra bauð fé­lagið upp á fjöl­breytta dag­skrá í Há­skól­an­um í Reykja­vík, sem hófst með ljós­gjörn­ingi og tón­leik­um í há­deg­inu. Í vik­unni sem Read more…

Stúd­enta­braggi HR og ný­sköp­un­ar- og rann­sókna­set­ur í Naut­hóls­vík

Stúd­enta­braggi HR og ný­sköp­un­ar- og rann­sókna­set­ur í Naut­hóls­vík Braggi frá stríðsár­un­um og tengd­ar bygg­ing­ar í Naut­hóls­vík munu ganga í end­ur­nýj­un lífdaga sem fé­lagsaðstaða fyr­ir nem­end­ur Há­skól­ans í Reykja­vík og ný­sköp­un­ar- og rann­sókn­ar­set­ur, sam­kvæmt samn­ingi sem Ari Krist­inn Jóns­son, rektor Há­skól­ans í Reykja­vík og Dag­ur B. Eggerts­son, borg­ar­stjóri, skrifuðu und­ir í Read more…

Ný stjórn SFHR

Ný stjórn SFHR Elísabet Erlendsdóttir tók nýlega við embætti formanns Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík (SFHR). Elísabet er á öðru ári í BSc-námi í heilbrigðisverkfræði við tækni- og verkfræðideild HR. Formaður félagsins er kosinn árlega meðal nemenda háskólans en SFHR er hagsmunafélag stúdenta við Háskólann í Reykjavík og ber því að Read more…