Stjórn LÍN

Formaður, varaformaður, fulltrúi mennta- og menningarmálaráðuneytis, fulltrúi fjármála- og efnahagsráðuneyti og fulltrúar námsmannahreyfinganna SÍNE, SHÍ, BÍSN OG SÍF skipa stjórn LÍN til 2017. Mennta- og menningarmálaráðherra skipar formann og varaformann stjórnar og einn fulltrúa ráðuneytisins. Þá skipar fjármála- og efnahagsráðuneytið einn fulltrúa. Rebekka Rún Jóhannesdóttir situr í stjórninni fyrir hönd BÍSN þar sem SFHR á aðild.

Rebekka Rún Jóhannesdóttir er fulltrúi BÍSN í stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Hún er meistaranemi í rekstrarverkfræði við Háskólann í Reykjavík, en hún lauk BSc gráðu í rekstrarverkfræði frá HR vorið 2017. Skólaárið 2014-2015 gegndi Rebekka Rún embætti formanns Pragma, nemendafélags tækni- og verkfræðinema í HR. Þá var hún formaður Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík skólaárið 2016-2017. Einnig situr hún í stjórn Byggingafélags námsmanna til tveggja ára fyrir hönd HR.

Þjónustusamningur SFHR & LÍN

Á haustmisserum skrifaði stjórn SFHR undir þjónustusamning við LÍN en þetta er í fyrsta sinn sem slíkur samningur er gerður við LÍN í þágu félagsmanna SFHR. Í samningnum felst að SFHR veiti þeim námsmönnum sem leita til SFHR aðstoð vegna umsóknar eða lántökuferli þeirra hjá LÍN. Jafnframt skal SFHR veita þeim lánþegum sem þess óska viðeigandi upplýsingar sem SFHR fær frá sjóðnum. Stjórn SFHR ábyrgist gagnvart stjórn LÍN að upplýsingarnar sé veittar af fagmennsku og á hlutlægan hátt. Gjaldtaka vegna þjónustunnar er með öllu óheimil og er fullum trúnaði heitið.

Þjónustan er veitt á skrifstofu SFHR (M205) og  er aðgengileg kl 10:00 – 13:0 alla virka daga ársins, utan venjulegra sumar-, jóla- og páskaleyfa.  Einnig er hægt að senda tölvupóst á studentafelag@studentafelag.is ef einhverjar spurningar vakna. 

Markmið SFHR með samstarfinu:

  • Veita námsmönnum aðstoð sem leita til SFHR vegna umsóknar eða lántökuferli þeirra hjá LÍN.
  • Auka almannavitund og upplýsta samfélagsumræðu um málefni LÍN.
  • Einfalda nauðsynleg samskipti hvað varðar umsóknir, afgreiðslur og endurgeiðslu námslána, upplýsingagjöf eða aðra hagsmuni námsmanna og stefnu sjóðsins.
  • Veita þeim lánþegum sem þess óska viðeigandi upplýsingar sem SFHR fær frá sjóðnum.
  • Veita almenna fræðslu um hlutverk og starfsemi sjóðsins á rafrænum vettvangi.
  • Auglýsa umsóknarfresti um námslán á skilmerkilegan hátt fyrir félagsmönnum SFHR að hausti, vori og um sumar, sem og aðra mikilvæga fresti.
  • Auglýsa annað sem LÍN vill vekja athygli á, t.d. breytingar á úthlutunarreglum.
  • Brýna fyrir félagsmönnum SFHR mikilvægi þess að skrá rétt netfang hjá LÍN.
  • Brýna fyrir félagsmönnum SFHR mikilvægi rafrænna samskipta, ekki bara sem lánþegar LÍN heldur jafnframt sem verðandi greiðendur sjóðsins.
  • Vera LÍN innan handar og samstarfsfús ef stjórn eða starfsmenn sjóðsins vilja leita til SFHR vegna ýmissa mála.