Stúdentafélagið (SFHR) er hagsmunafélag stúdenta við Háskólann í Reykjavík. Félaginu ber að standa vörð um hagsmuni félagsmanna sinna sem og að auka einingu meðal nemenda skólans. Allir nemendur Háskólans í Reykjavík eru meðlimir í SFHR og eru félagsgjöld engin.

Stjórn SFHR er skipuð sjö aðilum sem sitja eitt skólaár í senn og fara kosningar fram á vorönn. Starfsemi félagsins gengur að miklu leyti út á að veita skólanum aðhald hvað varðar gæði kennslunnar og aðstöðu nemenda til náms. Félagið er því í góðu sambandi við stjórnendur skólans og er oft kallað eftir áliti stjórnar SFHR varðandi úrlausn ýmissa mála.

Hver deild við skólann hefur sitt hagsmuna- og nemendafélag sem stendur vörð um hagsmuni félagsmanna sinna. Formaður hvers félags situr í fulltrúaráði SFHR og hefur þannig áhrif á stefnur og verkefni SFHR.

Aðilar að SFHR eru sjálfkrafa aðilar að Byggingarfélagi námsmanna (BN) og Bandalagi íslenskra námsmanna (BÍSN). BN sér um byggingu og viðhald námsmannaíbúða sem standa nemendum HR til boða á nemendagörðum sem staðsettir eru víðsvegar um borgina. BÍSN, sem stendur fyrir Bandalag Íslenskra Sérskólanema, er námsmannahreyfing sem gætir hagsmuna nemenda aðildarskóla sinna og hefur SFHR verið í forystuhlutverki samtakanna.

Skrifstofa Stúdentafélagsins er staðsett á 2. hæð í Mars (M205).

Stjórn SFHR 2024-2025

Forseti
Magnús Már Gunnlaugsson
magnusmg22(@)ru.is / studentafelag(@)ru.is

Varaforseti
Kara Kristín Blöndal Haraldsdóttir
karab22(@)ru.is / studentafelag(@)ru.is

Fjármálastjóri
Aron Kristinn Ágústsson
aronka22(@)ru.is / studentafelag(@)ru.is

Hagsmunafulltrúi
Rakel Sigmarsdóttir
rakels22(@)ru.is / studentafelag(@)ru.is

Samskiptafulltrúi
Ebba Kristín Yngvadóttir
ebba22(@)ru.is / studentafelag(@)ru.is

Markaðsfulltrúi
María Líf Magnúsdóttir
marialm22(@)ru.is / studentafelag(@)ru.is

Nefndarfulltrúi
Ástþór Ingi Runólfsson
astthor22(@)ru.is / studentafelag(@)ru.is

Efri röð frá vinstri: Ebba Kristín Yngvadóttir, Aron Kristinn Ágústsson, Ástþór Ingi Runólfsson, María Líf Magnúsdóttir. Neðri röð frá vinstri: Rakel Sigmarsdóttir, Magnús Már Gunnlaugsson, Kara Kristín Blöndal