Samþykkt þann 10. maí 2024
I.kafli. Heiti félags, heimili og hlutverk
1. gr. Félagið heitir Stúdentafélag Háskólans í Reykjavík (SFHR), á ensku The Student Association of Reykjavik University. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík. Starfstími stjórnar SFHR og reikningsár skal vera á milli aðalfunda.
2. gr. Hlutverk Stúdentafélagsins er að standa vörð um hagsmuni stúdenta við Háskólann í Reykjavík. Auka einingu meðal félagsmanna og stuðla að upplýstri akademískri umræðu meðal félagsmanna.
II. kafli. Aðild að félaginu
3. gr. Allir þeir er stunda nám við Háskólann í Reykjavík njóta aðildar að félaginu.
III. kafli. Aðalfundur
4. gr. Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins. Aðalfund Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík skal halda í lok vorannar ár hvert. Til hans skal boðað með tryggilegum hætti, hið minnsta tveimur vikum fyrir áætlaðan fundardag ella telst hann ólögmætur, dagskrá fundarins skal fylgja fundarboði. Forseti setur fundinn og skipar fundarstjóra sem stýrir umræðum. Á aðalfundi skal fylgja fundarsköpum sem stjórn hefur samþykkt. Til þess að tillaga á aðalfundi hljóti samþykki þarf samþykki
meirihluta fundarmanna, slíkt á þó ekki við um tillögur um breytingu á lögum félagsins sem fara eftir þessum lögum. Tillögur um efni sem er ekki á fundarboði skulu ekki teknar til afgreiðslu nema 2/3 hluti fundarmanna hafi samþykkt afgreiðslu slíkrar tillögu. Á aðalfundi skulu kosnir 2 skoðunarmenn til þess að endurskoða reikninga félagsins. Skal slíkri endurskoðun lokið hið minnsta 3 dögum eftir aðalfund. Skulu skoðunarmenn gera grein fyrir störfum sínum á aðalfundi undir liðnum ,,Fjármálastjóri skilar skýrslu um fjármál ársins”.
5. gr. Fráfarandi varaformaður skrifar fundargerð aðalfundar.
Dagskrá aðalfundar er eftirfarandi:
i. Kjör fundarstjóra.
ii. Forseti Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík fer yfir starf ársins.
iii. Fjármálastjóri skilar skýrslu um fjármál ársins.
iv. Lagabreytingar.
v. Skýrsla kjörstjórnar um niðurstöður kosninga.
vi. Stjórnarskipti.
vii. Önnur mál.
IV. kafli. Stjórn
6. gr. Stjórn félagsins
Stjórn Stúdentafélagsins skal skipuð sjö nemendum í grunnnámi eða meistaranámi við Háskólann í Reykjavík. Stjórn félagsins skipa forseti, varaforseti, fjármálastjóri, samskiptafulltrúi, hagsmunafulltrúi, markaðsfulltrúi og nefndarfulltrúi.
7. gr. Forseti
Forseti Stúdentafélagsins er formaður stjórnar Stúdentafélagsins, stjórnar fundum og kemur fram fyrir hönd Stúdentafélagsins í samskiptum við aðila innan sem utan Háskólans í Reykjavík. Forseti hefur yfirumsjón með starfsemi á vegum félagsins og ber hann endanlega ábyrgð á málefnum þess. Forseti situr í framkvæmdastjórn Háskólans í Reykjavík og situr fundi Háskólaráðs. Forseti er einnig fulltrúi félagsins í fulltrúastjórn Landsamtaka íslenskra stúdenta í að minnsta kosti eitt ár en getur kosið a sitja í tvö ár. Forseti hefur prókúru og ritar firma félagsins. Forseti ber ábyrgð á gerð ársskýrslu sem skal leggja fram á aðalfundi ár hvert og birta á heimasíðu félagsins. Í fjarveru forseta sinnir varaforseti þessum störfum.
8. gr. Varaforseti
Varaforseti skal rita fundargerðir stjórnarfunda og sjá til þess að fundargerðir séu samþykktar af stjórn Stúdentafélagsins.Varaforseti er formaður alþjóðanefndar Stúdentafélagsins og er því tengiliður stjórnar við erlenda nemendur sem stund nám við skólann sem og Alþjóðaskrifstofu skólans. Þar að auki sér varaforseti um helstu samskipti við framkvæmdastjórn Stúdentafélagsins og nefndir félagsins. Í fjarveru formanns stjórnar varaformaður fundum stjórnar og kemur fram fyrir hönd Stúdentafélagsins í samskiptum við aðila innan sem utan Háskólans í Reykjavík. Ákveði fyrrum forseti að sitja einungis í eitt ár sem fulltrúi félagsins í fulltrúastjórn Landsamtaka íslenskra stúdenta ber varaforseta að sitja í hans stað eða finna annan fulltrúa.
9. gr. Fjármálastjóri
Fjármálastjóri hefur einn umsjón með fjárráðum félagsins. Fjármálastjóri útbýr fjárhagsáætlun Stúdentafélagsins og leggur hana fyrir stjórn til samþykktar fyrir lok septembermánaðar. Ársuppgjör skal vera aðgengilegt félagsmönnum þremur dögum fyrir aðalfund hið minnsta. Fjármálastjóri hefur prókúru.
10. gr. Hagsmunafulltrúi
Hagsmunafulltrúi skal vinna að hagsmunamálum nemenda, gæðamálum náms við Háskólann í Reykjavík og hafa frumkvæði af úrbótum hverju sinni, hvort sem það er í samvinnu við kennslusvið eða einstaka deild innan háskólans. Þá skal hagsmunafulltrúi vera hagsmunafulltrúum nemendafélaganna innan handar. Hagsmunafulltrúi hefur umsjón með fyrirspurnum nemenda um Lánasjóð íslenskra Námsmanna (LÍN) og ber ábyrgð á að skila fullnaðarskýrslu með yfirliti um starfsemina ár hvert um framkvæmd þjónustusamnings. Auk þess er hann tengiliður stjórnar við lánasjóðsfulltrúa félagsins sem situr í stjórn LÍN. Hagsmunafulltrúi ber þar að auki ábyrgð á endurskoðun laga Stúdentafélagsins þegar þörf er á. Hagsmunafulltrúi situr í Gæðanefnd Landssamtaka íslenskra stúdenta.
11. gr. Samskiptafulltrúi
Samskiptafulltrúi ber ábyrgð á og hefur yfirumsjón með öllum útgáfumálum félagsins að undanskildu Háskólablaðinu. Samskiptafulltrúi sér um umsjón og svörun aðsendra bréfa, um heimasíðu félagsins og alla samfélagsmiðla sem félagið er á hverju sinni. Samskiptafulltrúi skal vinna náið með upplýsingafulltrúum nemendafélaganna til þess að tryggja gott upplýsingaflæði og svo að hægt sé að upplýsa nemendur sem best hverju sinni.
12. gr. Markaðsfulltrúi
Markaðsfulltrúi skal sjá til þess að samningum og samstörfum við önnur fyrirtæki sé fylgt eftir, bæði af hálfu SFHR og fyrirtækjanna. Markaðsfulltrúi skal vera í skilvirkum samskiptum við samstarfsaðila. Markaðsfulltrúi hefur auk þess umsjón með framleiðslu nemendaskírteina í byrjun skólaárs og hefur samband við fyrirtæki til þess að safna nemendaafsláttum. Markaðsfulltrúi vinnur í nánu sambandi með gjaldkera varðandi skipulag og halda öllu vel upplýstu.
13. gr. Nefndarfulltrúi
Nefndarfulltrúi hefur það hlutverk að hafa yfirumsjón yfir þeim undirnefndum sem starfa innan SFHR hverju sinni og sjá til þess að þær séu virkar í starfi og starfi undir gildum SFHR. Undirnefndir eru auglýstar í byrjun haustannar. Ef nefndir eru ekki fullmannaðar sér nefndafulltrúi um að auglýsa lausar stöður í byrjun skólaárs og tekur viðtal við umsækjendur í samráði við þá sem sitja í nefndum. Nefndarfulltrúi sér um að halda skipulagi á starfsemi undirnefndanna og upplýsa stjórn SFHR reglulega um gang mála í starfsemi þeirra. Nefndarfulltrúi aðstoðar nefndir í að halda viðburði. Nefndarfulltrúi aðstoðar stjórn við og tekur þátt starfsemi annarra nefnda hvort sem það er á vegum SFHR eða annarra samtaka eða stofanna.
14. gr. Fulltrúi erlendra nemenda.
Fulltrúi erlendra nemenda er með áheyrnarrétt á fundum og er tengiliður stjórnar við erlenda nemendur og skiptinema við Háskólann í Reykjavík. Fulltrúinn er kosinn inn af stjórn SFHR eftir viðtöl. Ávallt skal leitast eftir því að staðan sé mönnuð á bæði haust- og vorönn.
15. gr. Til að stjórnarfundur sé ályktunarbær þurfa meirihluti stjórnar að vera mætt. Til þess að ákvarðanir stjórnar séu bindandi og löglegar þarf meirihluta samþykki ályktunarbærs stjórnarfundar að vera til staðar.
16. gr. Stjórn stúdentafélagsins skal skipa einn stjórnarmeðlim í námsráð Háskólans í Reykjavík og annan stjórnarmeðlim í siðanefnd Háskólans í Reykjavík. Viðkomandi skal hins vegar ekki vera formaður félagsins.
17. gr. Vilji stjórnarmaður víkja sæti skal hann tilkynna stjórn SFHR það skriflega a.m.k. tveimur vikum áður en hann víkur sæti. Skal viðkomandi nýta þessar tvær vikur til þess að ganga frá þeim málum sem viðkoma SFHR og hann hefur með höndum.
18. gr. Stjórnarmaður Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík getur lýst vantrausti á annan stjórnarmann leggi hann fram skriflega beiðni til stjórnar með undirskrift 10% félagsmanna hið minnsta og skal sá síðarnefndi víkja sæti ef einróma samþykki annarra stjórnarmanna hlýst. Stjórnarmaður sem víkur sæti þarf að ganga frá sínum málum í samræmi við efni 11. gr. Komi til þess að stjórnarmaður af einhverjum ástæðum víki sæti skal stjórn skipa annan í hans stað, eigi síðar en tveimur vikum síðar. Auglýst skal tryggilega meðal félagsmanna SFHR eftir áhugasömum aðilum til þess að taka þátt í starfi stjórnar, eigi síðar en viku eftir að stjórnamaður víkur sæti og skal stjórn skipa einn af þeim aðilum sem lýsa áhuga sínum til þess að starfa í stjórn SFHR.
19. gr. Ef félagsmaður Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík hyggst lýsa vantrausti á stjórnarmeðlim skal sá hinn sami leggja fram skriflega beiðni til stjórnar, með undirskrift 10% félagsmanna hið minnsta og skal þá stjórn boða til félagsfundar innan viku frá því að slík beiðni barst. Fyrirkomulag fundarins fer eftir ákvæðum 14. gr. Komi til þess að stjórnarmaður víki sæti skal stjórn skipa annan í hans stað.
V. kafli. Félagsfundur
20. gr. Stjórn félagsins getur boðað til almenns félagsfundar til að ræða málefni félagsins. Forseti félagsins setur fundinn og tilnefnir fundarstjóra sem stýrir umræðum. Á félagsfundum SFHR skal fylgja fundarsköpum sem stjórn hefur samþykkt. Framlögð tillaga á félagsfundi hlýtur samþykki ef 2/3 hlutar fundarmanna greiða henni atkvæði sitt. Seturétt á félags‐ og aðalfundum eiga allir félagsmenn Stúdentafélagsins. Félagsmenn Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík geta krafist almenns félagsfundar, til að ræða málefni er varða Stúdentafélagið, með skriflegri beiðni, þar sem fram kemur efni og ástæða fundarins, og undirskrift hið minnsta 10% félagsmanna. Stjórn Stúdentafélagsins er skylt að halda slíkan fund innan tveggja vikna frá framlagningu beiðninnar. Boða skal til fundarins með viku fyrirvara hið minnsta með tryggilegum hætti, t.d. með tölvupósti, þar sem efni fundarins er tilgreint. Dagskrá fundarins skal fylgja fundarboði. Ekki er heimilt að taka fyrir önnur mál á félagsfundi, er félagsmenn hafa beðið um, en þau er koma fram í fundarboði.
VI. kafli. Fulltrúaráð
21. gr. Fulltrúaráð Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík skipa; formaður Atlas, formaður Lögréttu, formaður Markaðsráðs, formaður Pragma, formaður Mentes, formaður Technis og formaður Tvíundar.
22. gr. Hlutverk fulltrúaráðs SFHR er að auka einingu á milli deilda Háskólans í Reykjavík og vera stjórn SFHR innan handar við ákvarðanatöku í stærri málum.
23. gr. Formaður SFHR skal boða til fundar með fulltrúaráði á 14 daga fresti, hið minnsta. Fulltrúaráðsfundur er ályktunarbær um þau málefni sem til umfjöllunar eru á fulltrúaráðsfundi þegar 2/3 þeirra sem sæti eiga í fulltrúaráði eru mættir. Stjórn Stúdentafélagsins ber að hafa ályktanir fulltrúaráðsfundar að leiðarljósi við ákvarðanatöku í daglegri starfsemi.
VII. kafli. Háskólablaðið
24. gr. Ritstjórn Háskólablaðsins er skipuð fimm aðilum, ritsjóra, fjármálastjóra, markaðsstjóra, auglýsingastjóra og listrænum stjórnanda, kosnum í persónukjöri. Komi ekki framboð til ritstjórnar skal stjórn Stúdentafélagsins skipa í ritstjórn fyrir apríllok hvert ár. Hlutverk ritstjórnar er að gefa út Háskólablaðið, í það minnsta einu sinni á skólaári. Ritstjórn skal skila stjórn Stúdentafélagsins áætlun yfir starfsemi ritstjórnarinnar á skólaárinu, áður en kennsla hefst á haustönn.
25.gr. Ritstjóri hefur yfirumsjón með efnistökum Háskólablaðsins og ber ábygð á öllu útgefnu efni á vegum blaðsins. Ritstjóri stjórnar ritstjórnarfundum og skal í samráði við fjármálastjóra ákveða fjölda útgáfa, útgáfudag og umfang blaðs á því skólaári sem hann stýrir blaðinu. Ritstjóri hefur prófkúru og ritar firma félagsins.
26.gr. Fjármálastjóri hefur einn umsjón með fjárráðum félagsins og útbýr fjárhagsáætlun Háskólablaðsins. Hann hefur yfirumsjón á verðlagningu auglýsinga á vegum Háskólablaðsins eða öðrum atburðum/varningi sem Háskólablaðið hefur til sölu. Ársuppgjöri Háskólablaðsins skal skilað til gjaldkera Stúdentafélagsins þremur dögum fyrir aðalfund hið minnsta. Fjármálastjóri hefur prókúru.
27.gr. Markaðsstjóri sér um markaðssetningu blaðsins og ákvarðar í sameiningu með fjármálstjóra dreifingu, kynningu og aðra utanaðkomandi umfjöllun um Háskólablaðið.
28.gr. Auglýsingastjóri hefur umsjón með auglýsingasölu í Háskólablaðið og annað útgefið efni á vegum blaðsins s.s. á heimasíðu og kynningarefni.
29.gr. Listrænn stjórnandi hefur umsjón á útliti blaðsins og öðru útgefnu efni á vegum blaðsins, í samráði við ritstjóra. Hér er átt við útlit myndatakna, umbrot, hönnun o.s.frv.
30.gr. Ritstjórn er heimilt að taka sér í ritnefnd allt að fimm einstaklinga.
31. gr. Ritstjóri ákveður efni blaðsins og er ábyrgðarmaður útgáfunnar hvað varðar efnistök.
VIII. kafli. Kosningar
32. gr. Kosningar í stjórn Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík skulu fara fram fyrir aðalfund sbr. III. kafla. Boða skal til kosninga með a.m.k. þriggja vikna fyrirvara, skal það auglýst með tryggilegum hætti, m.a. með tölvupósti til nemenda, ella teljast kosningarnar ólögmætar. Framboðsfresti lýkur tíu dögum fyrir aðalfund. Kosning skal standa yfir í þrjá sólarhringa. Kosning hefst á hádegi þremur sólarhringum fyrir auglýstan aðalfund og lýkur á hádegi á sama degi og aðalfundur fer fram.
33. gr. Kosningarétt hafa allir félagsmenn SFHR. Kjörgengi hafa allir félagsmenn er hyggja á áframhaldandi nám við skólann. Framboð skulu vera skrifleg og undirrituð eða staðfest í gegnum skólanetfang frambjóðanda. Auglýsa skal eftir framboðum minnst þremur vikum fyrir aðalfund. Framboðsfresti lýkur tíu dögum fyrir aðalfund.
34. gr. Stjórn Stúdentafélagsins skal skipa sjö aðila í kjörstjórn. Leitast skal við að gæta jafnræðis milli aðildarfélaga við skipan kjörstjórnar. Kjörstjórn skal sjálf kjósa sér formann, atkvæði formanns vegur tvöfalt ef atkvæði eru jöfn við afgreiðslu máls innan kjörstjórnar. Þeir sem sæti eiga í kjörstjórn hafa fyrirgert rétti sínum til framboðs í viðkomandi kosningum. Kjörstjórn skal skipuð hið minnsta fjórum vikum fyrir aðalfund. Kjörstjórn skal skipuleggja kosningar og sjá um framkvæmd þeirra í samvinnu við stjórn SFHR. Kjörstjórn skal gæta hlutleysis og er hún bundin þagnarskyldu um framgang kosninga.
35. gr. Kosningar skulu fara fram með rafrænum hætti og skal kjörstjórn sjá til þess að öllum kröfum um öryggi og skilvirkni sé fullnægt. Kosningar skulu vera leynilegar.
36. gr. Ef frambjóðand er einn í framboði þarf hann ⅔ hluta greiddra atkvæða til að hljóta kosningu. Ef ekki hefur hlotist lögleg kosning í öll embætti, skal auglýsa eftir framboðum í laus embætti ekki síðar en 10 dögum eftir að niðurstöður kosninga liggja fyrir. Skal að öðru leyti fara um framkvæmd kosninganna eftir ákvæðum þessara laga.
37. gr. Stjórn Stúdentafélagsins skal skipa þrjá aðila í kærunefnd vegna kosninga, og tvo til vara, alls fimm aðila. Skal skipan kærunefndar lokið viku fyrir lok kosninga hið minnsta. Þeir sem sæti eiga í kærunefnd hafa fyrirgert rétti sínum til framboðs í viðkomandi kosningum. Við val á aðilum í kærunefnd skal leitast til við að skipa aðila sem koma úr mismunandi deildum og skal skipa einn aðila sem ekki er nemandi í Háskólanum í Reykjavík. Kærunefndin skal a.m.k. skipuð einum aðila sem lokið hefur grunnnámi í lögfræði. Nefndarmenn skulu gæta hlutleysis og eru bundnir þagnarskyldu um störf nefndarinnar umfram það sem gert hefur verið opinbert. Komi til þess að vafi leikur á hæfi einstakra nefndarmanna skal kærunefnd öll, þ.m.t. varamenn taka ákvörðun um hæfi viðkomandi. Skal nefndin hafa til hliðsjónar hæfisreglur stjórnsýslulaga við þá ákvörðun.
38. gr. Kærur vegna kosninga skulu berast kærunefnd skriflega eigi síðar en þremur virkum dögum eftir að kosningum lauk. Kærunefnd skal kveða upp úrskurð um efni kæru eigi síðar en viku eftir að kærufrestur rann út. Kærunefnd hefur endanlegt úrskurðarvald um efni kæru.
39. gr. Komist kærunefnd að því að kosning, í heild eða að hluta til, hafi ekki verið framkvæmd samkvæmt ákvæðum laga þessara um framkvæmd kosninga, skal kjörstjórn boða til nýrra kosninga. Skulu framboð sem bárust vegna fyrri kosninga gild í slíkum kosningum. Skal boðað til nýrra kosninga eigi síðar en viku eftir að kærunefnd skilar úrskurði sínum. Að öðru leyti skulu sömu reglur gilda um framkvæmd aukakosninga og aðalkosninga.
40. gr. Ef fjöldi atkvæða er jafnt milli frambjóðenda skal fráfarandi stjórn SFHR boða til nýrra kosninga um það embætti.
IX. kafli. Slit á félaginu
41. gr. Komi fram tillaga um að félaginu skuli slitið skal hún þá sæta sömu meðferð og tillaga til lagabreytinga, skv. 38. gr. Eignir félagsins ganga til Háskólans í Reykjavík til varðveislu þegar félaginu er slitið þar til stúdentar stofna annað félag í sama tilgangi sem telst arftaki Stúdentafélagsins og fær því eignir þess.
X. kafli. Breytingar og gildistaka
42. gr. Lögum félagsins má breyta á aðalfundi eða sérstaklega boðuðum lagabreytingafundi, boðuðum með 10 daga fyrirvara hið minnsta og þurfa 2/3 hlutar fundarmanna að greiða atkvæði með lagabreytingunni til að hún verði samþykkt. Stjórn er skylt að boða til lagabreytingarfundar ef 10% félagsmanna óskar þess. Stjórn er heimilt að boða til slíks fundar að eigin frumkvæði. Allir félagsmenn hafa rétt til að koma með tillögur að lagabreytingum. Tillögum til lagabreytinga skal skilað til stjórnar eigi síðar en 7 dögum fyrir boðaðan fund. Tillögur skulu auglýstar á tryggilegan hátt. Í fundarboði skal þess getið sérstaklega að tillaga til lagabreytinga verði tekin til meðferðar á fundinum og skal efni hennar lýst. Heimilt er á aðalfundi eða lagabreytingarfundi að koma með breytingartillögu við löglega framkomna breytingartillögu svo lengi sem tillaga fundarins breytir ekki efni upphaflegu breytingartillögunnar að upplagi. Lagabreyting öðlast gildi frá þeim tíma þegar hún er samþykkt á aðalfundi eða öðrum lagabreytingarfundi. Á lagabreytingafundi skal fylgja fundarsköpum sem stjórn SFHR hefur samþykkt.
43. gr. Stjórn SFHR skal skipa lagabreytinganefnd til þess að sjá um endurskoðun á lögum félagsins fyrir aðalfund ár hvert. Skal nefndin skipuð 3 aðilum. Störf nefndarinnar skulu hefjast í síðasta lagi 1. febrúar ár hvert. Lagabreytinganefnd starfar í samvinnu við stjórn SFHR og skal skila frumvarpi sem lagt verður fyrir aðalfund mánuði fyrir boðaðan aðalfund. Skal það frumvarp sent út með fundarboði aðalfundar til þess að
félagsmenn SFHR geti kynnt sér efni þess.
44. gr. Lög þessi skulu ávallt vera aðgengileg á heimasíðu SFHR og vera öllum félagsmönnum aðgengileg á þann hátt.
45. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi og falla eldri lög SFHR úr gildi.
XI.kafli. Hefðir
46. gr. Á kjörtímabili stjórnar SFHR ber þeim skylda að hoppa í sjóinn í nauthólsvík. Þau skulu bjóða nemendum skólans að koma og horfa á.
47. gr. Í byrjun haustannar ber stjórn stúdentafélagsins skylda að halda tiltektar fund. Á þessum tiltektar fundi skal stjórnin tryggja að, að minnsta kosti 2 aðilar úr stjórn hvers nemendafélags mæti. Tilgangur fundarins er að laga til á nemendafélags skrifstofunni, skrifstofu stúdentafélagsins og öllum geymslum sem eru í notkun af nemendafélögunum.