Kjörstjórn Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík boðar til kosninga 13. – 16. mars 2018 í stjórnir eftirfarandi félaga:
* Stúdentafélag Háskólans í Reykjavík.


* Atlas, félag íþróttafræðinema við Háskólann í Reykjavík.


* Markaðsráð, félag viðskiptafræðinema við Háskólann í Reykjavík.
* Mentes, félag sálfræðinema við Háskólann í Reykjavík.


* Pragma, félag tækni- og verkfræðinema við Háskólann í Reykjavík.


* Tvíund, félag tölvunarfræðinema við Háskólann í Reykjavík.
* Lögrétta, félag lögfræðinema við Háskólann í Reykjavík.

* Einnig er kosið í stjórn Háskólablaðsins.

Tekið verður við framboðum frá og með 19. febrúar eins og greint var frá í tölvupósti til nemenda. Frestur til framboðs í embætti á vegum Stúdentafélags HR og aðildarfélaga þess er til kl. 23:59 sunnudaginn 11. mars 2017.


Frambjóðendur hafa mánudaginn 12. mars til þess að kynna sín framboð áður en kosningar hefjast. Kosið verður í MySchool kennslukerfinu frá kl. 12:00 þriðjudaginn 13. mars til kl. 12:00 föstudaginn 16. mars. Úrslit verða kynnt í kosningapartýi að kvöldi 16. mars, sem auglýst verður síðar.

Eftirfarandi skilyrði gilda um framboð:

· Senda skal framboðstilkynningu með tölvupósti á netfangið kjorsfhr@ru.is, setja skal Framboð 2018 og viðeigandi félag í viðfangsefni (e. subject).
· Frambjóðandi skal taka það skýrt fram hvaða embætti hann býður sig fram í og í hvaða nemendafélagi.
· Fram þarf að koma fullt nafn frambjóðanda, aldur, námsbraut og námsgráðu sem frambjóðandi leggur stund á, ásamt stuttri kynningu á framboðinu (50-100 orð).
· Passamynd (eða sambærilega góð andlitsmynd) af frambjóðanda er skilyrði, og skal fylgja í viðhengi með tölvupósti.
· Allar þær upplýsingar sem beðið er um hér að framan eru birtar á kosningavef á heimasíðu Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík og/eða á Facebook-síðu Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík þegar að framboðsfresti lýkur. Upplýsingarnar verða afritaðar beint úr tölvupósti frá frambjóðenda, svo frambjóðandi ber alfarið ábyrgð á eigin rithætti.

Tengiliður hvers nemendafélags mun sjá um að boða til framboðsfundar í hverju nemendafélagi fyrir sig og fyrir Stúdentafélag Háskólans í Reykjavík. Framboðsfundir verða í upphafi kosningaviku og verða auglýstir síðar.

Reglur um framboðskynningar
· Frambjóðendum er frjálst að kynna framboð sín eftir að öll framboð hafa verið kynnt og svo fremi sem kosningabaráttan er háð með heiðarlegum hætti og af virðingu fyrir mótframbjóðendum.
· Aðeins má auglýsa framboð með plakötum á meðan að kosningu stendur, aðeins má nota fyrirfram skilgreind auglýsingasvæði, sbr. skólareglur. Frambjóðendum ber að virða umgengnisreglur skólans, hvort sem það er innan veggja skólans eða á skólalóð.
· Óheimilt er að raska starfsemi skólans nema með leyfi skólayfirvalda.
· Óheimilt er að stunda beinar framboðskynningar utan skólalóðar HR, s.s. í vísindaferðum. Þó er heimilt að halda úti kosningavefsíðu, en frambjóðendur skulu há kosningabaráttu sína með heiðarlegum hætti og af virðingu fyrir mótframbjóðendum á kosningasíðum sínum. Auglýsingar og framboðskynningar þurfa að vera innan siðferðislegra marka og eiga ekki að áreita nemendur að óþörfu.
· Leita þarf samþykkis hjá Katrínu Rut Bessadóttur (katrinrb@ru.is) fyrir veitingum á framboðskynningum.
· Frambjóðendum ber að fjarlægja allar auglýsingar og plaköt í húsnæði skólans að kosningum loknum.
· Frambjóðendur þurfa að öðru leyti að fylgja lögum þess nemendafélags sem viðkomandi frambjóðandi býður sig fram í.
· Lög um kosningar má finna undir lögum Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík á
http://sfhr.is/log-studentafelagsins/


Kjörstjórn er skipuð eftirfarandi aðilum:

* Salka Sigurðardóttir (SFHR), salka15@ru.is
* Íris Björk Indriðadóttir (Mentes), irisi16@ru.is
* Emil Robert Smith (Pragma), emil15@ru.is
* Hjördís Sveinsdóttir (Markaðsráð), hjordis16@ru.is
* Smári Björn Gunnarsson (Tvíund), smarig15@ru.is
* Sóley Guðmundsdóttir (Atlas), soleyg16@ru.is
* Iðunn Berta Magnúsdóttir (Lögrétta), idunn15@ru.is

Fulltrúi hvers nemendafélags sér um úrvinnslu framboðstilkynninga fyrir sitt nemendafélag. Framboðstilkynningum er svarað þegar að gengið hefur verið úr skugga um kjörgengi frambjóðanda.

Lýsingar á embættum
Hér á eftir koma lýsingar á embættum innan SFHR og aðildarfélaga.

Embætti innan Stúdentafélags HR (SFHR)

Kjörgengisskilyrði
Kjörgengir eru allir nemendur HR sem hyggja á áframhaldandi nám við HR. Allir nemendur Háskólans í Reykjavík hafa kosningarétt.

Lýsing á embættum
Stjórn Stúdentafélags HR skal kosin einstaklingskosningu. Embættin eru formaður, varaformaður, gjaldkeri, hagsmunafulltrúi og upplýsingafulltrúi.

Formaður SFHR:
Formaður Stúdentafélagsins, í hans fjarveru varaformaður, stjórnar fundum og kemur fram fyrir hönd Stúdentafélagsins í samskiptum við aðila innan sem utan Háskólans í Reykjavík. Formaður hefur yfirumsjón með starfsemi á vegum félagsins og ber hann endanlega ábyrgð á málefnum þess. Formaður situr í framkvæmdastjórn Háskólans í Reykjavík og situr fundi Háskólaráðs. Formaður hefur prókúru og ritar firma félagsins. Formaður ber ábyrgð á gerð ársskýrslu sem skal leggja fram á aðalfundi ár hvert og birta á heimasíðu félagsins.

Varaformaður SFHR: Varaformaður skal rita fundargerðir stjórnarfunda og sjá til þess að fundargerðir séu samþykktar af stjórn Stúdentafélagsins. Varaformaður er formaður alþjóðanefndar Stúdentafélagsins og er því tengiliður stjórnar við erlenda nemendur sem stund nám við skólann sem og Alþjóðaskrifstofu skólans. Þar að auki sér varaformaður um helstu samskipti við framkvæmdastjórn Stúdentafélagsins, nefndir Stúdentafélagsins og fulltrúa félagsins í framkvæmdastjórn Landssamtaka íslenskra stúdenta. Í fjarveru formanns stjórnar varaformaður fundum stjórnar og kemur fram fyrir hönd Stúdentafélagsins í samskiptum við aðila innan sem utan Háskólans í Reykjavík.

Gjaldkeri SFHR: Gjaldkeri hefur einn umsjón með fjárráðum félagsins. Gjaldkeri útbýr fjárhagsáætlun Stúdentafélagsins og leggur hana fyrir stjórn til samþykktar fyrir lok septembermánaðar. Ársuppgjör skal vera aðgengilegt félagsmönnum þremur dögum fyrir aðalfund hið minnsta. Gjaldkeri hefur prókúru félagsins.

Hagsmunafulltrúi SFHR: Hagsmunafulltrúi skal vinna að hagsmunamálum nemenda og gæðamálum náms við Háskólann í Reykjavík og hafa frumkvæði af úrbótum hverju sinni, hvort sem það er í samvinnu við kennslusvið eða einstaka deild innan háskólans. Þá skal hagsmunafulltrúi vera hagsmunafulltrúum nemendafélaganna innan handar. Hagsmunafulltrúi hefur umsjón með fyrirspurnum nemenda um Lánasjóð íslenskra Námsmanna (LÍN) og ber ábyrgð á að skila fullnaðarskýrslu með yfirliti um starfsemina ár hvert um framkvæmd þjónustusamnings. Auk þess er hann tengiliður stjórnar við lánasjóðsfulltrúa félagsins sem situr í stjórn LÍN. Hagsmunafulltrúi ber þar að auki ábyrgð á endurskoðun laga Stúdentafélagsins þegar þörf er á. Hagsmunafulltrúi skal sækjast eftir því að sitja í Gæðanefnd Landssamtaka íslenskra stúdenta.

Upplýsingafulltrúi SFHR: Upplýsingafulltrúi ber ábyrgð á og hefur yfirumsjón með öllum útgáfumálum félagsins að undanskildu Háskólablaðinu HRóður. Upplýsingafulltrúi sér um umsjón og svörun aðsendra bréfa, um heimasíðu félagsins og alla samfélagsmiðla sem félagið er á hverju sinni. Upplýsingafulltrúi skal vinna náið með upplýsingafulltrúum nemendafélaganna til þess að tryggja gott upplýsingaflæði og svo að hægt sé að upplýsa nemendur sem best hverju sinni.

Embætti í ritstjórn Háskólablaðsins

Kjörgengir eru allir nemendur HR sem hyggja á áframhaldandi nám við HR. Allir nemendur Háskólans í Reykjavík hafa kosningarétt. Ritstjórn Háskólablaðsins er kosin einstaklingskosningu.

Hlutverk ritstjórnar er að gefa út Háskólablaðið, a.m.k. einu sinni á skólaári. Ritstjórn skal standa skil á starfsemi ritstjórnar á skólaárinu áður en kennsla á haustönn hefst. Ritstjórn er heimilt að auglýsa eftir blaðamönnum innan Háskóla Reykjavíkur eftir því sem við á.

Lýsing á embættum:

Ritstjóri
Hefur yfirumsjón með efnistökum Háskólablaðsins og ber ábyrgð á öllu útgefnu efni á vegum blaðsins. Ritstjóri stjórnar einnig ritstjórnarfundum og skal í samráði við fjármálastjóra ákveða fjölda útgáfa, útgáfudag og umfang blaðs á því skólaári sem hann stýrir blaðinu. Ritstjóri hefur prókúru og ritar firma félagsins.

Fjármálastjóri
Hefur einn umsjón með fjárráðum félagsins og útbýr fjárhagsáætlun fyrir Háskólablaðsins. Ársuppgjöri Háskólablaðsins skal skilað til gjaldkera Stúdentafélagsins þremur dögum fyrir aðalfund hið minnsta. Fjármálastjóri hefur prókúfu.

Markaðsstjóri
Sér um markaðssetningu blaðsins og ákvarðar í sameiningu með fjármálastjóra dreifingu, kynningu og aðra utanaðkomandi umfjöllun um Háskólablaðið.

Fjáröflunarstjóri
Hefur umsjón með allri fjáröflun og auglýsingasölu í Háskólablaðið og annað útgefið efni á vegum blaðsins, s.s. á heimasíðu og kynningarefni.

Listrænn stjórnandi
Hefur umsjón á útliti blaðsins og öðru útgefnu efni á vegum blaðsins, í samráði við ritstjóra. Þar er átt við útlit myndatakna, umbrot, hönnun o.s.frv.

Embætti í Atlas

Kjörgengisskilyrði:
Kjörgengir eru allir nemendur í íþróttafræði í HR sem hyggja á áframhaldandi nám við íþróttafræði í HR. Allir nemendur íþróttafræðinnar Háskólans í Reykjavík hafa kosningarétt. Stjórn Atlas skal kosin einstaklingskosningu.

Lýsing á embættum:

Formaður: Formaður Atlas ritar firma félagsins. Formaður hefur prókúru félagsins. Formaður kemur fram fyrir hönd Atlas innan sem utan Háskólans í Reykjavík. Formaður stjórnar fundum stjórnar og situr í framkvæmdastjórn SFHR.

Varaformaður: Varaformaður kemur fram í forföllum formanns, ásamt því að sinna ýmsum aðkallandi verkefnum.

Gjaldkeri:
Ber ábyrgð á bókhaldi félagsins ásamt því sem hann undirbýr fjárhagsáætlun félagsins eitt ár fram í tímann og leggur hana fyrir stjórn til samþykktar fyrir septemberlok ár hvert. Hann skal einnig leggja fyrir stjórnina ársreikning á aðalfundi félagsins. Gjaldkeri hefur prókúru félagsins.

Ritari: Ritari ritar fundargerðir stjórnarfunda. Hann hefur umsjá aðsendra bréfa. Ritari skal vera tengiliður við önnur félög í kennslufræði og lýðheilsu, innlend sem erlend. Í fjarveru hans ritar meðstjórnandi fundargerðir stjórnarfunda.

Skemmtanastjóri:
Skipuleggur vísindaferðir og uppákomur af ýmsu tagi. Skemmtanastjóri verður í nánu sambandi við önnur félög og heldur samkomur í samstarfi við þau.

Embætti innan Markaðsráðs:

Kjörgengisskilyrði
Greiðandi félagar í Markaðsráði hafa kjörgengi. Kosningarétt hafa allir viðskiptafræðinemar við HR. Stjórn Markaðsráðs skal kosin einstaklingskosningu.

Lýsing á embættum:

Formaður: Formaður hefur yfirumsjón með því sem gert er í félaginu og er öllum stjórnarmönnum innan handar. Hann kemur fram fyrir hönd stjórnar, sér um að boða og stjórna fundum og búa til fundardagskrá. Formaður ritar firma félagsins og hefur prókúru þess. Formaður ber ábyrgð á því að lögum og reglum félagsins sé framfylgt. Formaður situr í framkvæmdastjórn SFHR.


Varaformaður: Varaformaður Markaðsráðs er ritari félagsins og kemur fram fyrir hönd félagsins í forföllum formanns. Varaformaður ritar fundargerðir og sér um svörun aðsendra bréfa. Varaformaður er ábyrgðarmaður facebook síðu Markaðsráðs, og sér um að halda uppi upplýsingaveitu til nemenda um atburði félagsins.

Gjaldkeri: Hlutverk gjaldkera Markaðsráðs er að halda utan um bókhald Markaðsráðs. Gjaldkeri fer jafnframt með yfirumsjón yfir fjármálum allra nefnda og undirfélaga sem satarfa á vegum Markaðsráðs. Gjaldkeri sér um að halda utan um reikninga og viðskipti félagsins. Í upphafi annar þarf að setja fram fjárhagsáætlun fyrir skólaárið. Hann skal einnig leggja fyrir stjórnina áramótauppgjör eigi síðar en 31. janúar ár hvert. Gjaldkeri situr í stjórn Markaðsráðs.

Formaður Málfundafélags: Ber ábyrgð á starfi Málfundafélags Markaðsráðs. Formaður málfundafélags skal sjá um að halda ýmis virðisaukandi námskeið fyrir nemendur. Formaður málfundafélags situr í stjórn Markaðsráðs og tekur að sér stöðu ritara í fjarveru varaformanns.

Formaður Skemmtinefndar: Formaður skemmtinefndar ber ábyrgð á starfi skemmtinefndar markaðsráðs, þ.e. sér um allar vísindaferðir, uppákomur, samkomur og allt félagslíf í kringum viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík. Formaður skemmtinefndar situr einnig í stjórn Markaðsráðs.

Formaður Hagfræðifélagsins ber ábyrgð á starfi Hagfræðifélagsins og tekur þátt í störfum stjórnar. Formaður skal, ásamt ritstjóra Hagvísis og meðlimum Hagfræðifélagsins annast útgáfu Hagvísis, tímarits viðskipta- og hagfræðinema við Háskólann í Reykjavík.
Kjörgengisskilyrði

Embætti innan Mentes:

Kjörgengisskilyrði
Kosningarétt hafa allir félagsmenn. Kjörgengi hafa þeir félagsmenn sem greitt hafa félagsgjöld. Stjórn Mentes skal kosin einstaklingskosningu. 



Lýsing á embættum:
Formaður Mentes:
Formaður kemur fram fyrir hönd Mentes innan sem utan Háskólans í Reykjavík og er tengiliður Mentes við önnur félög sálfræðinema, innlend sem erlend. Formaður sér einnig um að boða til og stýra fundum stjórnar, ritar firma félagsins og hefur, ásamt gjaldkera, prófkúru félagsins. Formaður situr í framkvæmdastjórn SFHR.

Varaformaður:
Varaformaður sinnir störfum formanns í hans fjarveru og ritar fundargerðir stjórnarfunda í fjarveru ritara. Varaformaður, ásamt ritara, hefur yfirumsjón með Námsaðstoð Mentes sem felst í námskeiðum, prófbúðum og annarri kennslu.

Gjaldkeri Mentes:
Gjaldkeri ber ábyrgð á bókhaldi félagsins og hefur, ásamt formanni, prókúru félagsins. Gjaldkeri sér einnig um undirbúning fjárhagsáætlana, bæði fyrir starfsárið sem heild sem og einstaka viðburði.

Ritari Mentes:
Ritari hefur umsjón með heimasíðu og fésbókarsíðu félagsins sem og umsjá aðsendra bréfa og tölvupósta. Ritari sér um að rita fundargerðir stjórnarfunda. Ritari, ásamt varaformanni, hefur yfirumsjón með Námsaðstoð Mentes sem felst í námskeiðum, prófbúðum og annarri kennslu.

Skemmtanastjóri Mentes:
Skemmtanastjórn vinnur í samvinnu við skemmtinefnd að skipulagningu vísindaferða og annarra viðburða. Skemmtanastjóri er einnig í samstarfi við önnur nemendafélög og sér um skipulagningu sameiginlegra viðburða.

Embætti í Pragma:

Kjörgengisskilyrði
Kosið er einstaklingskosningu, í stjórn og nefndir Pragma. Kosningarétt hafa allir félagsmenn. Kjörgengi hafa þeir félagsmenn sem greitt hafa félagsgjöld.

Lýsing á embættum:
Formaður: Formaður Pragma ritar firma félagsins og hefur prófkúru. Formaður situr í framkvæmdastjórn SFHR

Varaformaður/ritari: Varaformaður hefur umsjón með facebook síðu og heimasíðu félagsins ásamt umsjá aðsendra bréfa. Ritari skal vera tengiliður Pragma við önnur félög verkfræðinema, innlend sem erlend

Gjaldkeri: Gjaldkeri ber ábyrgð á bókhaldi félagsins. Gjaldkeri undirbýr fjárhagsáætlun félagsins eitt ár fram í tímann og leggur hana fyrir stjórn til samþykktar fyrir septemberlok ár hvert. Hann skal einnig leggja fyrir stjórnina fjárhagsstöðu félags eigi síðar en 31. janúar ár hvert. Verði gjaldkera ljóst að tap sé á rekstri félagsins skal boða til fundar innan stjórnar hið fyrsta og tekin sameiginleg ákvörðun um aðgerðir.


Skemmtanastjóri: Skemmtanastjóri hefur yfirumsjón skemmtanalífi Pragma, hann skal skipuleggja vísindaferðir og aðra viðburði sem tengjast skemmtanalífinu. Skemmtanastjóri hefur yfirumsjón með skemmtinefnd Pragma og skal einnig vera tengiliður skemmtanastjóra hinna félaga innan SFHR.

Upplýsingastjóri: Upplýsingastjóri hefur yfirumsjón með upplýsinganefnd og skal vinna að því að fá aðila úr atvinnulífinu til að standa fyrir fyrirlestrum og námskeiðum er tengjast þeim verkræðigreinum sem kenndar eru við Háskólann í Reykjavík. Upplýsingastjóri og upplýsinganefnd standa fyrir prófbúðum Pragma.

Fulltrúi í upplýsinganefnd – 2 stöður: Fulltrúar í upplýsinganefnd skulu vera upplýsingastjóra innan handar og hjálpa til við þau verkefni sem honum falla í hendur.

Fulltrúi í skemmtinefnd – 3 stöður: Fulltrúar í skemmtinefnd skulu vera skemmtanastjóra innan handar og hjálpa til við þau verkefni sem honum falla í hendur.

Embætti í Tvíund

Kjörgengisskilyrði
Allir félagsmenn hafa kosningarétt og eru kjörgengnir. Kosið er einstaklingskosningu í embætti stjórnar og skemmtinefnd.

Lýsing á embættum:

Formaður Tvíundar: Formaður kemur fram fyrir hönd félagsins innan sem utan Háskólans í Reykjavík. Formaður er tengiliður Tvíundar við Tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík. Formaður stjórnar fundum stjórnar og situr í framkvæmdastjórn SFHR.

Gjaldkeri Tvíundar: Gjaldkeri ber ábyrgð á bókhaldi félagsins og hefur prókúru á reikninga félagsins. Gjaldkeri undirbýr fjárhagsáætlun félagsins eitt ár fram í tímann og leggur hana fyrir stjórn til samþykktar fyrir septemberlok ár hvert. Hann skal einnig leggja fyrir stjórnina áramótauppgjör eigi síðar en fyrir upphaf vorannar ár hvert.

Upplýsingafulltrúi Tvíundar: Upplýsingafulltrúi ritar fundargerðir stjórnarfunda. Upplýsingafulltrúi hefur umsjón með heimasíðu félagsins og hefur umsjá með aðsendum bréfum. Upplýsingafulltrúi skal vera tengiliður Tvíundar við önnur félög tölvunarfræðistúdenta, innlend sem erlend. Upplýsingafulltrúi sér til þess að öll gögn sem snúa að störfum stjórnarinnar séu aðgengileg öllum stjórnarmeðlimum og sér til þess að næsta stjórn fái aðgang að áðurnefndum gögnum. Upplýsingafulltrúi hefur yfirumsjón með Tvíund Production. Upplýsingafulltrúi er jafnframt varaformaður félagsins.

Hagsmunafulltrúi Tvíundar: Hlutverk hagsmunafulltrúa er að útvega og halda utan um þau námskeið og fyrirlestra sem haldnir eru á vegum félagsins. Hagsmunafulltrúi skal hafa yfirumsjón með upprifjunarnámskeiðum fyrir lokapróf á hverri önn. Auk þess skal hann vera tengiliður Tvíundar við tölvunarfræðideildina fyrir þau námskeið sem tölvunarfræðideildin stendur fyrir. Hann hefur yfirumsjón með og er tengiliður við hverja þá klúbba sem eru á vegum félagsins.

Skemmtanastjóri: Skemmtanastjóri hefur yfirumsjón með viðburðum á vegum Tvíundar. Hann hefur einnig yfirumsjón með skemmtinefnd Tvíundar og er formaður hennar. Skemmtanastjóri er sömuleiðis tengiliður félagsins við skemmtanastjóra annarra nemendafélaga innan Háskólans í Reykjavík.

Fulltrúi í skemmtinefnd – 2 stöður:
Aðstoðar Skemmtanastjóra. Skemmtinefnd hefur yfirumsjón með mannfögnuðum á vegum Tvíundar. Skemmtinefnd Tvíundar skal skipuð þremur aðilum, skemmtanastjóra og tveimur fulltrúum. Kosinn er skemmtanastjóri og í embætti fulltrúa skemmtinefndar. Þeir tveir aðilar sem fá flest atkvæði í embætti fulltrúa skemmtinefndar hljóta kosningu.

Embætti í Lögréttu

Kjörgengisskilyrði
Allir félagsmenn hafa kosningarétt og eru kjörgengnir. Kosið er einstaklingskosningu í embætti stjórnar og nefndar Lögréttu.

Lýsing á embættum:
Formaður Lögréttu: Formaður kemur fram fyrir hönd Lögréttu innan sem utan Háskólans í Reykjavík. Formaður stjórnar einnig fundum stjórnar Lögréttu og situr sem fulltrúi laganema á deildarfundum lagadeildar. Auk þess ritar formaður Lögréttu firma félagsins og hefur prókúru félagsins ásamt gjaldkera.


Varaformaður Lögréttu: Varaformaður ritar fundargerðir stjórnarfunda og hefur umsjón með heimasíðu félagsins,www.logretta.is, svo og umsjá aðsendra bréfa. Einnig skal varaformaður vera tengiliður Lögréttu við önnur félög laganema, innlend sem erlend. Í fjarveru formanns kemur varaformaður fram fyrir hönd lögréttu innan sem utan Háskólans í Reykjavík og stýrir fundum stjórnar Lögréttu.


Gjaldkeri Lögréttu: Gjaldkeri ber ábyrgð á bókhaldi félagsins. Felst það meðal annars í því að honum ber að undirbúa fjárhagsáætlun félagsins eitt ár fram í tímann og leggja hana fyrir stjórn til samþykkis. Einnig skal hann gera ársuppgjör og ársreikning í lok reikningsárs félagsins. Gjaldkeri hefur prókúru félagsins ásamt formanni.


Ritstjórn Tímarits Lögréttu: Fjórir aðilar í ritstjórn Tímarits Lögréttu. Hér er um listakosningu að ræða og skal einn aðilanna koma fram sem formaður og situr hann jafnframt sem fulltrúi í stjórn Lögréttu. Hlutverk ritnefndar er að sjá um útgáfu Tímarits Lögréttu. Formaður ritnefndar ber ábyrgð á útgáfustarfsemi Lögréttu og tekur þátt í störfum stjórnar Lögréttu.

Málfundafélag Lögréttu: Fjórir aðilar í stjórn málfundafélags Lögréttu. Hér er um listakosningu að ræða og skal einn aðilanna koma fram sem formaður og situr hann jafnframt sem fulltrúi í stjórn Lögréttu Hlutverk félagsins er að stofna til umræðu um lögfræðileg málefni og að þjálfa félaga sína til lögfræðilegra viðfangsefna, rökfimi og mælskulistar. Formaður málfundafélags ber ábyrgð á starfi Málfundafélags Lögréttu og tekur þátt í störfum stjórnar Lögréttu

Skemmtinefnd Lögréttu: Fjórir til fimm aðilar í skemmtinefnd Lögréttu. Hér er um listakosningu að ræða og skal einn aðilanna koma fram sem formaður og situr hann jafnframt fundi stjórnar Lögréttu og hefur þar tillögu- og áheyrnarrétt. Skemmtinefnd skal skipuleggja skemmtanir fyrir félagsmenn í samstarfi við stjórn Lögréttu.

Fulltrúar í framkvæmdaráði Lögfræðiþjónustu Lögréttu: Tveir til fjórir aðilar í framkvæmdaráð Lögfræðiþjónustu Lögréttu. Hér er um listakosningu að ræða og skal einn aðili koma fram sem framkvæmdastjóri Lögfræðiþjónustunnar en hinir sem meðstjórnendur í framkvæmdaráði.
Tilgreint skal á framboðslista hver býður sig fram í embætti framkvæmdastjóra. Framkvæmdastjóri skal við framboð vera að ljúka 6. önn til B.A. gráðu í lögfræði eða hafa lokið B.A. gráðu í lögfræði.

Bestu kveðjur,
Kjörstjórn SFHR

Categories: Uncategorized