Árshátíðarnefnd SFHR sér um skipulagningu árshátíðar HR sem haldin er hátíðleg árlega. Næsta árshátíð verður haldin á vorönn, dagsetning kemur síðar. Árshátíð HR er stærsti viðburður skólaársins en allt að 1.300 nemendur mæta til að njóta borðhaldsins, skemmtiatriða, sjá frumsýningu á myndböndum í HR-musical keppninni frægu og skella sér svo á ball að borðhaldi loknu.
Árshátíðarnefnd SFHR 2024-2025 skipuleggur viðburðinn, endilega hafið samband ef þið hafið áhuga á að sitja í nefndinni og plana næstu árshátið á studentafelag@ru.is.
*Birt með fyrirvara um breytingar.