Jafnréttisfélag SFHR var formlega stofnað 5. október 2015. Ekkert álíka félag hefur starfað innan skólans og er orðið löngu tímabært að stofna slíkt félag. Jafnréttisfélagið boðar jöfnuð fyrir alla, óháð kyni, kynhneigð, uppruna, heilbrigði eða trú. Fyrsta verkefni félagsins var að skipuleggja röð viðburða fyrir Jafnréttisdaga háskólanna en HR var að taka þátt í dögunum í fyrsta skipti.
Ný stjórn mun setja sér markmið og móta starfið þannig að tekið yrði fyrir mismunun af hvaða toga sem er með því að standa fyrir viðburðum innan skólans, t.d. fyrirlestrum og þemavikum, sem stuðla að vitundarvakningu meðal HR-inga. Einnig skapast grundvöllur fyrir HR-inga til að senda frá sér yfirlýsingar hvað varðar jafnréttisumræðu í þjóðfélaginu og taka þátt í og koma af stað samfélagsmiðlabyltingum á borð við #6dagsleikinn, #FreeTheNipple, #konurtala og #þöggun.
Stjórn Jafnréttisfélags SFHR 2022-2023
Eva Egilsdóttir
Hildur María Arnalds
Hlynur Bjarki Johnsson
Mirra Sjöfn
Nói Jón Marinósson
Vigdís María Geirsdóttir
Instagram síðu Jafnréttisfélagsins má finna hér.